Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10-11:30 í Digraneskirkju – neðri hæð (og alltaf ókeypis!) 🩵

Á fimmtudaginn ætlar Finnur Hilmarsson, kennari í fyrstu hjálp og slökkviliðs- & sjúkraflutningamaður, að koma í heimsókn og kenna foreldrum helstu atriði í fyrstu hjálp ungra barna.

Að venju verður boðið upp á morgunmat og rjúkandi heitt kaffi. Hlökkum til að sjá ykkur!

🔵 Foreldramorgnar Digranes- og Hjallakirkju
https://www.facebook.com/groups/25248303981459907/

17. mars 2026 - 09:39

Helga Bragadóttir