Digraneskirkja
▪️ Messa kl. 11
Félagar úr Samkór Kópavogs leiða sönginn. Organisti er Lenka Mátéová, sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, þjónar. Messuþjónar taka á móti ykkur kæru vinir ásamt því að annast ritningarlestur.

▪️ Íþrótta- og sunnudagaskóli kl. 11
Þrautabraut, leikur, söngur og bænir. Umsjón hafa Tinna Rós og félagar.

Súpa, grautur og kaffi eftir stundirnar í safnaðarheimili.

Hjallakirkja

Vinsamlega athugið breytingu á messutíma vegna fermingar.
▪️ Fermingarmessa kl. 11
Kvartett úr Hljóðfalli, kór Digraness- og Hjallakirkju syngur undir stjórn Helgu Margrétar, organisti er Kristján Hrannar. Prestar kirknanna Alfreð, Helga og Hildur þjóna. Verið velkomin í messu!

 

 

19. mars 2026 - 15:48

Alfreð Örn Finnsson