Vinsamlega athugið að um helgina verða fermingarmessur og veislur
í kirkjunum. Það er því aðeins breyting á messuhaldi og íþrótta- og sunnudagaskólinn er í fríi.
Öll eruð þið velkomin í skemmtilegar fermingarmessur!
Laugardagur 28. mars
Hjallakirkja
▪️ Fermingarmessa kl. 11
Kvartett úr Hljóðfalli, kór Digraness- og Hjallakirkju syngur undir stjórn Helgu Margrétar, organisti er Kristján Hrannar. Prestar kirknanna Alfreð, Helga og Hildur þjóna.
Sunnudagur 29. mars
Digraneskirkja
▪️ Fermingarmessur kl. 11 og kl. 13.30
Kvartett úr Hljóðfalli, kór Digraness- og Hjallakirkju syngur undir stjórn Helgu Margrétar, organisti er Kristján Hrannar. Prestar kirknanna Alfreð og Hildur þjóna.

25. mars 2026 - 13:17

Hildur Sigurðardóttir