Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.

Digraneskirkja – Þriðjudagur 31. mars kl. 11-14.15

Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, Linda og Stefán bjóða upp á alvöru fiskibollur og

meðlæti. Eftir helgistund verður hið árlega páskabingó með fullt af flottum vinningum.

Kaffi, molar og spjall.

Hjallakirkja – miðvikudagur 1. apríl kl. 12-14

Fiskur á föstu – Helgistund, góður gestur og fiskmáltíð.

Helga Margrét og Kristján Hrannar flytja hugljúfa tóna. 

Kaffi, spjall og prjónasamvera.

Verið velkomin!

29. mars 2026 - 10:24

Alfreð Örn Finnsson