
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 14. apríl kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12. Linda og Stefán bjóða upp á grísapottrétt og hrísgrjón.
Guðrún Sigurðardóttir, djákni leiðir helgistund og segir frá vorferðinni okkar. Kristján Hrannar organisti
og söngkonan Herdís Anna Jónasdóttir flytja fyrir okkur fallega tónlist.
Kaffi, molar og spjall.
Hjallakirkja – miðvikudagur 15. apríl kl. 12-14
Bænastund, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera. Kristján Óli guðfræðinemi og starfsmaður í
barnastarfi kirknanna leiðir bænastundina ásamt Kristjáni Hrannari organista.
Digraneskirkja – fimmtudagur 16. apríl kl. 11-12.15
Leikfimi í kapelluni kl. 11, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 10. apríl kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!
Vinsamlega athugið að prestar kirknanna eru á prestastefnu á Akureyri þessa vikuna því hafa Guðrún djákni og Kristján Óli guðfræðinemi umsjón með helgistundum vikunnar. Helgistundin á fimmtudaginn fellur niður að þessu sinni.
12. apríl 2026 - 16:08
Alfreð Örn Finnsson

