
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 21. apríl kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12. Linda og Stefán reiða fram vínarsnitsel og meðlæti.
Gestur okkar að þessu sinni er Guðrún Ágústsdóttir fyrrverandi stjórnmálakona.
Kaffi, molar og spjall.
Hjallakirkja – miðvikudagur 22. apríl kl. 12-14
Bænastund, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – föstudagur 24. apríl kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!
20. apríl 2026 - 09:02
Alfreð Örn Finnsson

