Sunnudaginn 5. febrúar kl. 16-18 verður stór hátíð hjá fermingarbörnum í Kópavogi.

Haldin verður poppmessa í Digraneskirkju með Regínu Ósk og Svenna, eiginmanni hennar, og á undan verða úrslit í spurningarkeppni fermingarbarna en síðustu helgi fóru fram undanúrslit.

Lið Lindasóknar og Kársnessóknar keppa til úrslita.

 

Á sama tíma verður einnig risaflóamarkaður allra fermingarbarna í Kópavogi.

Með Flóamarkaðnum gefst tækifæri fyrir fermingarbörn og fjölskyldur þeirra að  losa um pláss í geymslum, kössum eða háloftum og bjóða öðrum að kaupa nytja hluti á kostakjörum.
Ágóði af flóamarkaðanum mun renna óskiptur til Innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar.

Hlutir sem koma til greina eru bækur, geisla diskar, myndbönd- og mynddiskar, málverk, leikföng, lampar, skrautmunir, eldhúsáhöld, borðbúnaður og svo framvegis.

Einnig eru minni húsgögn, raftæki og vel með farinn fatnaður vel þeginn.

Það sem ekki selst á Flóamarkaðnum verður gefið áfram á Nytjamarkað Kristniboðssambandsins í Austurveri.

Mælst er til að öll fermingarbörnin taki þátt og leggi til að minnsta kosti tvo nytjahluti en þeim skal skilað í Digraneskirkju í þessari viku á skrifstofutíma kl. 10:00-16:00 fram að föstudegi.

Munum: Margt smátt gerir eitt stórt og enginn getur hjálpað öllum en allir geta hjálpað einhverjum.

Verið hjartanlega velkomin á spurningarkeppni, flóamarkað og í poppmessu!

31. janúar 2012 - 17:09

Sr. Gunnar Sigurjónsson