Næsta Alfa námskeið verður í Lindakirkju í janúar 2012. Það stendur frá kl. 19 til 22 og hefst með kvöldverði. Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 25. janúar 2011.
Hvað er Alfa?
Alfa er tíu vikna námskeið, einu sinni í viku, þar sem fjallað er um tilgang lífsins út frá kristnu sjónarhorni. Farið er í grundvallaratriði kristinnar trúar á einfaldan og þægilegan hátt. Auk þess fara þátttakendur eina helgi saman út úr bænum.
Tekist er á við mikilvægustu spurningar lífsins. Hvorki eru gerðar kröfur um trúarafstöðu né heimalærdóm eða aðrar skuldbindingar gerðar til þátttakenda.
Hver samvera hefst með léttum málsverði kl. 19:00. Síðan er kennt í um 45 mínútur og eftir stutt hlé eru umræður í hópum. Að lokum er stutt helgistund. Námskeiðinu lýkur kl. 22:00.
Á Alfa námskeiðinu gefst fólki tækifæri til að spyrja spurninga og taka þátt í skapandi umræðu um lífið og tilveruna.
Alfa námskeiðið hófst í Englandi fyrir u.þ.b. 20 árum. Námskeiðið er nú haldið í um 130 löndum í flestum kirkjudeildum. Yfir 6 milljónir manna hafi sótt námskeiðið um allan heim.
Alfa námskeiðið í Digraneskirkju
Fyrsta Alfa námskeiðið í Digraneskirkju var haldið í janúar 2001. Það hefur notið mikilla vinsælda. Góður hópur alfaliða heldur utan um námskeiðið, en sr. Magnús Björn Björnsson hefur stjórnað því frá upphafi. Nú þegar hafa um 350 manns sótt námskeiðið okkar. Þeir sem hafa lokið Alfa námskeiði halda gjarna áfram að hittast einu sinni í mánuði í Alfa heimahópum eða taka þátt í öðrum námskeiðum sem boðið er upp á.
Fyrir hverja er Alfa?
Alfa er öllum opið
- sem leita vilja svara við spurningum um tilgang lífsins.
- sem vilja kynna sér grundvallaratriði kristinnar trúar.
- sem langar að velta fyrir sér hvaða gildi móta líf okkar og samfélag.
- sem trúa.
- sem efast
- sem ekki trúa.
Hvað kostar að fara á Alfa námskeið?
Ekkert námskeiðsgjald er á alfanámskeiðum. En kvöldverð allt námskeiðið, vinnubók og efniskostnað má styrkja eftir efnum og ástæðum.
Alfa helgin greiðist sérstaklega.
Hvernig skrái ég mig á Alfa námskeið í Digraneskirkju?
Skráning er í síma 554 1620 hjá kirkjuverði Digraneskirkju eða í
netfangi: magnus@digraneskirkja.is
