Uppstigningardagur er kirkjudagur aldraðra.

Guðsþjónusta verður í Digraneskirkju í samstarfi við Hjallakirkju kl. 14.
Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi og „hnallþórur“
sr. Yrsa Þórðardóttir annast um helgihaldið.

Um kvöldið verður Fornbílamessa kl. 20 í Digraneskirkju.
Þá koma félagar úr Fornbílaklúbbnum ásamt vonandi fleiri klúbbar sem hafa sérstakan áhuga á þeim menningararfi þjóðarinnar sem varðveittur er í gömlum bílum.
Bílarnir verða til sýnis á bílaplani kirkjunnar og Fornbílaklúbburinn býður upp á gamaldags kirkjukaffi eftir messuna.
Einar Clausen syngur að venju „Áfram veginn í vagninum ek ég“.
sr. Gunnar Sigurjónsson annast um helgihaldið í Fornbílamessunni.

Allir eru velkomnir.

Textar dagsins

Fréttabréf Digraneskirkju sumarið 2011

18. maí 2011 - 16:25

Sr. Gunnar Sigurjónsson