Trúarlegt ferðalag í helgihaldi Digraneskirkju

Skírdagur (5. apríl) er dagur seinustu kvöldmáltíðarinnar og því tilhlýðilegt að söfnuðurinn komi saman um kvöldið kl. 20 til þess að eiga samfélag um borð Guðs. Altarissakramentið verður fram borið með sérbökuðu ósýrðu brauði og bergt af sameiginlegum kaleik.
Organisti: Zbigniew Zuchowicz


Föstudagurinn langi (6. apríl)

Passíuguðsþjónusta kl. 20.   Prestur syngur litaníuna ásamt kór Digraneskirkju.   Litanían minnir okkur á píslardauða og krossfestingu Krists.   Prestur les ritningartexta passíunnar. Passíuguðsþjónustunni lýkur með því að kirkjan verður myrkvuð og íhugun þagnarinnar tekur við.
Organisti: Zbigniew Zuchowicz

Aðfangadag páska (7. apríl) kl. 22 er Páskavaka

Hátíðahöld páskanna eru elsta kristna guðsþjónustugerð sem þekkt er í kirkjunni og á uppruna sinn í Jerúsalem á 1. öld, í kirkju postulanna.

Jóhannes guðspjallamaður nefnir Jesú Krist “ljós heimsins”.  Af þeirri hefð spratt sá siður að tendra nýjan eld á vökunni og kveikja á páskakertinu sem tákn um nærveru Jesú Krists, hins upprisna Drottins, sem lýsir myrkri veröld.  Orð og athafnir páskavökunar eru full af táknum, sum auðskilin, önnur krefjast nokkurrar þekkingar og íhugunar.
Páskavakan hefst kl. 22 við eldstæði fyrir utan Digraneskirkju.

 

Páskahátíðin (8. apríl) hefst að morgni páskadags kl. 8

Sungin verður hátíðarmessa sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Organisti: Zbigniew Zuchowicz.  Prestar Digraneskirkju þjóna allir í messunni.  Eftir messu verður morgunmatur í safnaðarsal og er mælst til þess að safnaðarfólk komi með eitthvert meðlæti með sér.   Húsmóðir kirkjunnar hitar kaffi, te og heitt súkkulaði og heit rúnnstykki þar að auki.     Allir eru velkomnir.

23. mars 2012 - 12:24

Sr. Gunnar Sigurjónsson