Trúarlegt ferðalag í helgihaldi Digraneskirkju

Skírdagur

er dagur seinustu kvöldmáltíðarinnar og því tilhlýðilegt að söfnuðurinn komi saman um kvöldið kl. 20 til þess að eiga samfélag um borð Guðs. Altarissakramentið verður fram borið með sérbökuðu ósýrðu brauði og bergt af sameiginlegum kaleik. Prestur: sr. Gunnar Sigurjónsson

Föstudagurinn langi

Um kvöldið kl. 20 er passíuguðsþjónusta.  Lesnir eru ritningartextar passíunnar og tónlist eða söngur milli lestra.
Passíuguðsþjónustunni lýkur með því að kirkjan verður myrkvuð og íhugun þagnarinnar tekur við. Prestur: sr. Bára Friðriksdóttir

Aðfangadag páska kl. 22 er Páskavaka.

Hátíðahöld páskanna eru elsta kristna guðsþjónustugerð sem þekkt er í kirkjunni og á uppruna sinn í Jerúsalem á 1. öld, í kirkju postulanna.   Textar vökunnar eru þá að mestu leyti fullmótaðir en vakan í heild sinni fullmótuð á 2. öldinni.

Hún er því ein elsta kristna guðsþjónustugjörð sem þekkt er.

Safnast var saman til guðsþjónustunnar eftir sólarlag, en þá hófst nýr dagur samkvæmt tímatali Gyðinga og vakað fram að árroða páskamorguns.

Á 2. öld var sú stefna orðin ríkjandi að þeir sem vildu skírast til kristinnar trúar og tilheyra kirkjunni létu gera það á páskavökunni að undangenginni fræðslu.

Ritningartextar á vökunni voru því eins konar lokafræðsla trúnemanna.  Eftir upprifjun hjálpræðissögunnar í lestrunum voru þeir skírðir og gengu að því loknu til páskamáltíðarinnar (heilagrar kvöldmáltíðar) sem fullgildir í samfélagi kirkjunnar.

Jóhannes guðspjallamaður nefnir Jesú Krist “ljós heimsins”.  Af þeirri hefð spratt sá siður að tendra nýjan eld á vökunni og kveikja á páskakertinu sem tákn um nærveru Jesú Krists, hins upprisna Drottins, sem lýsir myrkri veröld.  Orð og athafnir páskavökunar eru full af táknum, sum auðskilin, önnur krefjast nokkurrar þekkingar og íhugunar.  (Páskavaka útg. af síra Sigurði Sigurðarssyni vígslubiskupi í Skálholti).

Páskavakan hefst kl. 22 við eldstæði fyrir utan Digraneskirkju.

Páskavakan skiptist í fjóra meginþætti:

1. Þjónusta ljóssins – blessun hins nýja elds

2. Þjónusta orðsins – ritningarlestrar

3. Heilög skírn (endurnýjun skírnarheitsins)

4. Messan

Hér má sjá fleiri myndir frá páskavökunni 2008 sem Jón Svavarsson ljósmyndari tók.

Páskahátíðin hefst að morgni páskadags kl. 9
Ath. breytta tímasetningu

Sungin verður hátíðarmessa sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Eftir messu verður morgunmatur í safnaðarsal og er mælst til þess að safnaðarfólk komi með eitthvað meðlæti með sér.   Húsmóðir kirkjunnar hitar kaffi, te og heitt súkkulaði og býður rúnnstykki þar að auki.

13. mars 2018 - 15:53

Sr. Gunnar Sigurjónsson