Fimmtudaginn 30. maí er Uppstigningardagur.  Það er kirkjudagur aldraðra.
Digraneskirkja og Hjallakirkja halda sameiginlega guðsþjónustu klukkan 14 í Digraneskirkju.
Eftir messu eru veglegar veitingar í safnaðarsal Digraneskirkju. 

Um kvöldið klukkan 20 höldum við kirkjudag aldraðra bíla í samstarfi við Fornbílaklúbbinn.
Tónlistin í þeirri guðsþjónustu er á vegum Sólveigar Sigríðar Einarsdóttur og Einars Clausen, söngvara.

22. maí 2019 - 14:43

Sr. Gunnar Sigurjónsson