Haustmessa

Haustmessa Eldriborgararáðs verður haldin í samvinnu við Hjalla- og Digranessöfnuði í Digraneskirkju sunnudaginn 22. september kl. 11:00. Sr Karen Lind Ólafsdóttir predikar og þjónar fyrir altari ásamt Þóreyju Dögg Jónsdóttur djákna. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir og einsöngvari er Anna Sigríður Helgadóttir. 

Eftir messuna verður boðið upp á veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar. 

Allir eru innilega velkomnir og takið með ykkur gesti!

18. september 2019 - 13:08

Helga Kolbeinsdóttir