Verið velkomin á opið hús í Digraneskirkju á föstudag (31. janúar) 

Dagskrá
Kl. 17:30 Húsið opnar
Kl. 17:40 Stutt helgistund
Kl. 18:00 Kvöldmatur (kjötfars) á 1.000 kr
Kl. 18:45 Sýning á myndinni ,,Overcomer“ hefst í Kapellu á neðri hæð kirkjunnar.
Kl. 21:15 Áætlað að sýningu myndarinnar sé lokið kl. 21:15

Hægt er að nýta þjónustu kirkjubílsins (500 kr.), en nauðsynlegt er að panta bílinn hjá kirkjuverði í síma 554 1620 fimmtudeginum fyrir Opna húsið. 

Á opnu húsi 31. janúar nk. sýnir Friðarbíó myndina ,,Overcomer“. Myndin segir frá íþróttakennara í gagnfræðaskóla og hvaða áhrif það hefur á líf hans og trú að þjálfa unga stúlku með Astma til að hlaupa maraþon. Overcomer er frábær mynd með góðum kristilegum boðskap. Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum til Friðarbíós. Þá verður einnig hægt að kaupa gos og popp gegn vægu gjaldi, allur ágóði rennur til Friðarbíós. 

Velkomin að kíkja til okkar, hvort sem er í einn dagskrárlið eða alla. Einnig er upplagt að mæta með handavinnuna eða spila, heitt á könnunni í safnaðarsal kirkjunnar.

27. janúar 2020 - 12:35

Helga Kolbeinsdóttir