Guðsþjónusta með fermingu í Digraneskirkju

Sunnudaginn 23. ágúst kl. 11:00 er guðsþjónusta með fermingu í Digraneskirkju. Guðsþjónustan verður í umsjá sr. Gunnars Sigurjónssonar og Sólveig Sigríður Einarsdóttir, organista.

Ath! Vegna COVID-19 verður ekki altarisganga og biðjum við fólk að gæta þess að virða tveggja metra reglu.

Kaffi og kex í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni. 

Guðspjall sunnudagsins (Lúk 18.9-14): 

Jesús sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því að sjálfir væru þeir réttlátir en fyrirlitu aðra: „Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var farísei, hinn tollheimtumaður.
Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir: Guð, ég þakka þér að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður. Ég fasta tvisvar í viku og geld tíund af öllu sem ég eignast.
En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins heldur barði sér á brjóst og sagði: Guð, vertu mér syndugum líknsamur! Ég segi yður: Tollheimtumaðurinn fór heim til sín sáttur við Guð, hinn ekki, því að hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.“

19. ágúst 2020 - 18:12

Helga Kolbeinsdóttir

Go to Top