Sunnudagaskólinn í Digranes- og Hjallakirkju er alla sunnudaga kl 11:00 í Digraneskirkju. Sunnudagaskólinn hentar öllum börnum á aldrinum fjögra til átta ára en yngri börn eru að sjálfsögðu velkomin í fylgd með foreldrum eða öðrum.

Í sunnudagaskólanum kynnast börnin sögunum af Jesú og læra söngva og bænir sem styðja við trúarlíf þeirra. Áhersla er lögð á virkni barnanna. Sunnudagaskólinn er í kapellunni á neðri hæð Digraneskirkju, og hefst á stuttri samveru þar sem börnin fá að heyra sögur úr Biblíunni, syngja söngva og fara með bænir. Því næst er farið í skemmtilega leiki, föndur og margt annað spennandi.

Léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar að stund lokinni (ókeypis fyrir börn, 500 kr. fyrir fullorðna).

Sjáumst á sunnudag!

4. september 2020 - 12:35

Helga Kolbeinsdóttir