Verið velkomin í fjölbreytt helgihald sunnudag!

Digraneskirkja

Vorhátíð barnastarfsins! Fjölskyldumessa kl 11:00 í umsjá sr Helgu, Söru Lindar æskulýðsfulltrúa og leiðtogum barnastarfsins. Leikrit, söngur og fjör! Hoppikastali og pulsur að messu lokinni. 

Hjallakirkja
Messa kl 17:00 í umsjá sr Sunnu Dóru. Lögreglukórinn sér um tónlistarflutning undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar.. 

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í kirkjunum okkar!

Guðspjall sunnudagsins: Jóh 10.11-16
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur sauðina þegar hann sér úlfinn koma og úlfurinn hremmir þá og tvístrar þeim. Enda gætir hann sauðanna aðeins fyrir borgun og er ekkert annt um þá. Ég er góði hirðirinn og þekki mína og mínir þekkja mig eins og faðirinn þekkir mig og ég þekki föðurinn. Ég legg líf mitt í sölurnar fyrir sauðina. Ég á líka aðra sauði sem eru ekki úr þessu sauðabyrgi. Þá ber mér einnig að leiða, þeir munu heyra raust mína. Og það verður ein hjörð, einn hirðir.

28. apríl 2022 - 15:21

Helga Kolbeinsdóttir