Sunnudaginn 4. febrúar verður messa í Digraneskirkju kl. 11:00 og guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 13:00
Sr. Jóhanna Magnúsdóttir þjónar og Sólveig Sigríður Einarsdóttir er organisti.Aðstoðarmaður í báðum athöfnum er Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, Stása, sem er m.a. þekkt fyrir þættina „Með okkar augum.“
Íþrótta- og sunnudagaskólinn verður á sínum stað í Digraneskirkju kl. 11:00 Ásdís og Sara Lind hafa umsjón.
Súpa og brauð að hætti Lindu og Stefáns í safnaðarheimilinu eftir stundirnar í Digraneskirkju.
Kaffi og kex í boði eftir guðsþjónustu í Hjallakirkju.Verið hjartanlega velkomin!
2. febrúar 2024 - 10:42
Alfreð Örn Finnsson