Á miðvikudögum á föstunni verður boðið upp á bæn, fiskmáltíð og erindi í Hjallakirkju milli kl. 12 og 13.
Dagskráin hefst með bænastund kl. 12. Því næst verður fiskmáltíð að hætti Stefáns í safnaðarheimili og við fáum góða gesti í heimsókn.
Öskudag 14. febrúar verður öskudagsmessa, fiskur og samfélag. Næstu miðvikudaga verður bænastund, fiskur og við fáum góðan gest. Fylgist með á Facebook og heimaíðum kirknanna.
Það er vel þegið ef þið skráið ykkur í matinn á hjallakirkja@hjallakirkja.is en máltíðin kostar 1500 kr. með kaffi, kexi og góðum félagsskap.
Verið velkomin!
11. febrúar 2024 - 13:51
Alfreð Örn Finnsson