Samfélagið hefst aftur eftir jólafrí.

Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.

Digraneskirkja – Þriðjudagur 14. janúar kl. 11-14.15

Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, boðið verður upp á plokkfisk og þrumara. 

Eftir helgistund kemur Ingunn Ósk Sturludóttir, söngkona með meiru í heimsókn og segir m.a. frá

búsetu sinni í eynni Vigur. Kaffisopi og góðir molar. 

Hjallakirkja – miðvikudagur 15. janúar kl. 12-14

Bænastund kl. 12, háegisverður eftir stundina. Kaffi, spjall og prjónasamvera.

Digraneskirkja – fimmtudagur 16. janúar kl. 11-12.15

Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.

Digraneskirkja – föstudagur 17. janúar kl. 11

Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.

Verið velkomin!

11. janúar 2026 - 13:42

Alfreð Örn Finnsson