Hetjan ég
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 10-12 ára börn
Sex mánudaga á vorönn 2021- Dagsetning auglýst síðar
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 10-12 ára börn. Stúlkur eru í Digraneskirkju og drengir í Lindakirkju. Markmið námskeiðsins er að auka félagsfærni, bæta sjálfsmynd og gefa bjargráð við kvíða.
Námskeiðið er samstarfsverkefni söfnuðanna og KFUM&KFUK.
Verð: 15.000 kr (ath! Mögulegt að sækja um styrk). Innifalin í gjaldinu er sólarhringsferð í Vatnaskóg og léttur kvöldverður.