Fermingar 2026
Skráning í fermingar 2026
Fermingarfræðsla 2025 – 2026
Fermingarnámskeið verður haldið í ágúst. Einnig verður boðið upp á janúarnámskeið fyrir þau sem ekki komast í ágúst eða vilja heldur sækja námskeiðið í janúar. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að hrista hópinn saman í fjörugum leikjum. Kynning á fræðslu vetrarins, horfum á stutt myndbönd og kynnumst Jesú og nokkrum dæmisögum hans.
Fermingarfræðslan fer fram í september, október og nóvember annars vegar og hins vegar janúar, febrúar og mars. Við lærum um réttlæti, íþróttir og trú, sjálfstraust, tónlist, listir o.fl.
Tímasetningar fermingarfræðslunnar (krakkarnir velja eina af þessum tímasetningum, Ath! þessar tímasetningar gætu breyst eftir ferðina í Vatnaskóg):
Mánudagur 15. september kl. 15-15.45 í Hjallakirkju
Miðvikudagur 17. september kl. 14.15-15 í Hjallakirkju
Fimmtudagur 25. september kl. 14.45-15.30 í Digraneskirkju
Föstudagur 26. september kl. 14.30-15.15 í Digraneskirkju
Fræðslan fer fram í Hjallakirkju eina vikuna og Digraneskirkju hina vikuna. Krakkarnir mæta í þann tíma sem hentar þeim best og mæta tvisvar í mánuði.
Ferming.is
Þjóðkirkjan er með heimasíðu um fermingarfræðsluna og fermingu á slóðinni www.ferming.is.
Fermingarbarnaferðalag í Vatnaskóg verður í september og október 2025.
Fermingarbörnin fara á fermingarnámskeið í Vatnaskóg 30. september-2. október. Kostnaður í ferðina er 27.900 kr. Innifalið er rúta, matur, fræðsla o.fl. Þau fermingarbörn sem skráð eru í Þjóðkirkjuna fá ferðina niðurgreidda af prófastsdæminu og kirkjunni sinni, gjaldið verður því samtals 18.200.- Ef þið eruð í vafa hvort þið séuð skráð í Þjóðkirkjuna er hægt að kanna það á island.is og auðvelt er að skrá sig þar með rafrænum skilríkjum. Það er ekki skilyrði að vera í Þjóðkirkjunni til að sækja fermingarfræðslu en þau sem eru utan Þjóðkirkjunnar þurfa að greiða fullt gjald.
KOSTNAÐUR
Fermingarfræðslugjaldið er krónur 26.992 krónur. Innifalið er fræðslan, námsgögn og leiga á kyrtli við fermingu (krónur 2000).
Velkomið er að hafa samband ef illa stendur á eða erfitt er að greiða fyrir fræðslu og ferð í einu lagi. Kirkjan vill gera öllum kleift að komast með í Vatnaskóg og taka þátt í fermingarfræðslunni.
Nánari upplýsingar
Ef eitthvað er óljóst má fá upplýsingar hjá prestum kirkjunnar í gegnum netfangið alfredf@kirkjan.is – helgabr@kirkjan.is – hildurs@kirkjan.is