Á meðan Digraneskirkja var í smíðum gripu sóknarnefnd, prestur og mörg sóknarbörn í vefinn og fylgdust þannig með því þegar þrír messuskrúðar urðu til frá 19. júlí til 23. september 1994. Vinnan fór fram á vinnustofu Guðrúnar Vigfúsdóttur og stjórnaði hún verkinu.
![Rauður hökull](/wp-content/uploads/2011/01/raudur_minni.jpg)
Framhlið og bak rauða hökulsins. Táknið á bakinu vísar til grunnteikningar kirkjubyggingarinnar.
![Fjólublár hökull](/wp-content/uploads/2011/01/fjolublar_minni.jpg)
Framhlið og bak fjólubláa hökulsins. Krossmark og gluggar úr kirkjubyggingunni.
![Grænn hökull](/wp-content/uploads/2011/01/graenn_minni.jpg)
Framhlið og bak græna hökulsins. Súlur utan og innan kirkjunnar og liljutáknið.
![Hvítur hökull](/wp-content/uploads/2011/01/hvitur_minni.jpg)
Framhlið og bak hátíðarhökulsins Guðrún Vigfúsdóttir gaf Digraneskirkju. Stólan lögð yfir.